Flug með farþega gegn gjaldi
Ekki er heimilt að fljúga með farþega gegn gjaldi eða í ábataskyni hér á landi nema skv. gildu flugrekstrarleyfi fyrir flutningaflug. Frá þessari reglu eru þrjár undantekningar.
Flug með farþega gegn gjaldi - skipting kostnaðar.
Ekki er heimilt að fljúga með farþega gegn gjaldi eða í ábataskyni hér á landi nema skv. gildu flugrekstrarleyfi fyrir flutningaflug.
Frá þessari reglu eru þrjár undantekningar:
1. Flugkennsla
Flugskólum og flugkennurum er heimilt að taka gjald fyrir flugkennslu til útgáfu eða viðhalds flugréttinda sem falla undir starfsheimildir þeirra.
2. Skipting kostnaðar
Heimilt er að skipta kostnaði í einkaflugi að uppfylltum eftirfarandi skilyrðum:
- Eingöngu er heimilt að skipta beinum kostnaði vegna þess flugs sem um ræðir. Undir beinan kostnað getur t.d. fallið eldsneytiskostnaður, flugvallagjöld eða leiga á vél. Viðhaldskostnaður, tryggingar og annar viðvarandi kostnaður telst hins vegar ekki til beins kostnaðar við flugið í þessum skilningi.
- Flugmaður verður að taka þátt í skiptingu kostnaðar og má ekki hagnast á fluginu.
- Ekki mega vera fleiri en sex um borð í loftfarinu að flugmanni meðtöldum.
3. Kynningarflug
Flugskólum og félögum sem stofnuð eru í þeim tilgangi að kynna sport- eða tómstundaflug er heimilt að taka gjald fyrir kynningarflug með eftirfarandi skilyrðum:
- Fyrirtækið starfræki loftfarið á grundvelli eignarhalds eða tómaleigu.
- Flugið skapi ekki hagnað, sem greiddur er út utan fyrirtækisins.
- Flug með aðra en þá sem eru meðlimir í viðkomandi fyrirtæki má aðeins vera lítill hluti af starfsemi fyrirtækisins.
Flugöryggi og tryggingar
Flutningaflug er einn allra öruggasti samgöngumáti sem til er og eru flugrekendur sem starfa á grundvelli flugrekstrarleyfis háðir ströngu eftirliti og miklar kröfur eru gerðar til hæfni áhafna og viðhalds loftfara.
Í einkaflugi gilda vægari öryggiskröfur og er flugöryggisstig allt annað. Í flutningaflugi er einnig almennt mun víðtækari tryggingavernd en í einkaflugi.
Samgöngustofa beinir til aðila sem taka þátt í þeirri starfsemi sem fjallað er um hér að framan að kynna vel fyrir farþegum sínum mismunandi öryggisstig í einka- og flutningaflugi og gera farþegum sínum grein fyrir hvaða tryggingavernd er til staðar í viðkomandi flugi.