Fara beint í efnið

Flokkar ökuréttinda

Ökuréttindaflokkar eru tilgreindir með bókstöfum og táknmynd aftan á ökuskírteinum. Aftan við ökuréttindaflokkana er fyrsti útgáfudagur og lokadagur gildistíma hvers réttindaflokks fyrir sig.

  • Ekki þarf ökuréttindi til að stjórna léttu bifhjóli á tveimur dekkjum, sem hafa hönnunahraða undir 25km á klukkustund.

Flokkur/tákntala

Aldur

Veitir rétt til að stjórna:

AM

15

léttu bifhjóli á tveimur eða þremur hjólum , með vélarstærð ekki yfir 50cc. Ekki hannað fyrir meiri hraða en 45 km

A1 (A72)

17

bifhjóli á tveimur hjólum, með eða án hliðarvagns, með slagrými sem er ekki yfir 125 sm³, með afl sem er ekki yfir 11kW og með afl og þyngdar hlutfall sem er ekki yfir 0,1 kQ/kg og einnig bifhjóli á þremur hjólum með afl sem er ekki yfir 15 kW, bifhjólum í AM-flokki

A2

19

tvíhjóla bifhjóli með eða án hliðarvagns þar sem hlutfall vélarafls og eigin þyngdar fer ekki yfir 0,2 kW/kg. Þá má vélarafl bifhjólsins ekki fara yfir 35 kW. Ökutæki í Am og A1- flokki og torfærutæki, svo sem vélsleða

A

24

bifhjóli á tveimur hjólum með eða án hliðarvagns, bifhjóli á þremur hjólum með meira afl en 15 kW, léttu bifhjóli í AM flokki og bifhjóli í A1 og A2 flokki.

B

17

bifreið sem gerð er fyrir 8 farþega eða færri auk ökumanns og er 3.500 kg eða minna að leyfðri heildarþyngd sem tengja má við:

a. eftirvagn/tengitæki sem er 750 kg eða minna að leyfðri heildarþyngd eða

b. eftirvagn/tengitæki sem er meira en 750 kg að leyfðri heildarþyngd enda sé vagnlest 3.500 kg eða minna að leyfðri heildarþyngd,

3. bifhjóli á fjórum eða fleiri hjólum

4. léttu bifhjóli í AM-flokki,

5. bifhjóli á þremur hjólum í A1-, A2- eða A-flokki með þeirri takmörkun að sá sem er yngri en 21 árs má ekki stjórna slíku bifhjóli með afl yfir 15 kW,

6. dráttarvél í T-flokki

7. vinnuvél (akstur á vegum) og

8. torfærutæki, svo sem vélsleða

BE

18

bifreið í B-flokki í með eftirvagn/tengitæki sem er ekki meira en 3500 kg að leyfðri heildarþyngd (kerruréttindi)

C

21

bifreið sem gerð er fyrir 8 farþega eða færri auk ökumanns og er meira en 3.500 kg að leyfðri heildarþyngd sem tengja má við eftirvagn/tengitæki sem er 750 kg eða minna að leyfðri heildarþyngd

C1
(C74)

18

bifreið sem gerð er fyrir 8 farþega eða færri auk ökumanns og er meira en 3.500 kg en ekki meira en 7.500 kg að leyfðri heildarþyngd sem tengja má við eftirvagn/tengitæki sem er 750 kg eða minna að leyfðri heildarþyngd

CE

21

bifreiðum í:

C-flokki með eftirvagn/tengitæki sem er meira en 750 kg að leyfðri heildarþyngd,

B- og C1-flokki sem tengja má við eftirvagn/tengitæki í BE- og C1E-flokki,

D1- og D-flokki með eftirvagn/tengitæki í D1E- og DE-flokki enda hafi viðkomandi réttindi fyrir D1- og D-flokk.

C1E
(CE76)

18

bifreið í C1-flokki með eftirvagn/tengitæki sem er meira en 750 kg að leyfðri heildarþyngd

D

23

bifreið sem gerð er fyrir fleiri en 8 farþega auk ökumanns sem tengja má við eftirvagn/tengitæki sem er 750 kg eða minna að leyfðri heildarþyngd

D1 (D75)

21

bifreið sem er ekki lengri en 8 m og gerð er fyrir 16 farþega eða færri auk ökumanns sem tengja má við eftirvagn/tengitæki sem er 750 kg eða minna að leyfðri heildarþyngd

DE

23

bifreið í D-flokki með eftirvagn/tengitæki sem er meira en 750 kg að leyfðri heildarþyngd,réttindi til að stjórna bifreið í B- og D1-flokki með eftirvagn/tengitæki í BE- og D1E-flokki. Umsækjandi um ökuskírteini fyrir DE-flokk skal hafa ökuskírteini fyrir D-flokk.

T

16

dráttarvél sem tengja má við eftirvagn/tengitæki. Ökuskírteini fyrir T-flokk má veita þeim sem er orðinn 16 ára. Ökuskírteini fyrir A1-, A2-, A- og B-flokk veitir rétt til að stjórna torfærutæki.

Þjónustuaðili

Samgöngu­stofa