Rafmagnshlaupahjól
Rafmagnshlaupahjól (einnig kölluð rafhlaupahjól eða rafskútur) tilheyra flokki reiðhjóla og eru hönnuð til aksturs frá 6 til 25 kílómetra hraða á klukkustund.
Rafmagnshlaupahjóli má
aka á hjólastíg, gangstétt og göngustígum
aka yfir götu og gangbraut, ef hægt er vel á sér.
ekki aka á götu eða akbraut
Virða þarf almenn umferðlög
Stoppa þarf á rauðu ljósi.
Leggja rafmagnshjólinu svo það hindri ekki för vegfarenda, valdi slysahættu eða óþægindum.
Ekki leggja á miðri gangstétt, stígum, við rampa, gönguþveranir eða fyrir inngöngum húsa.
Ökumenn á rafmagnshlaupahjóli
eru á öllum aldri og engin aldursmörk eru á notkun rafmagnshlaupahjóla. Ávallt skal þó fylgja aldursviðmiðum framleiðenda hjóla og aldurstakmörkum rafhlaupahjólaleiga
mega ekki nota hjól eftir að hafa neytt áfengis eða vímuefna
lúta að sömu reglum og ökumenn reiðhjóla varðandi öryggisbúnað
mega ekki nota snjalltæki eða farsíma við akstur
sem eru undir 16 ára aldri þurfa alltaf að nota hjálm
Mælt er með að allir ökumenn á rafmagnshlaupahjólum noti hjálm öryggis vegna, óháð aldri og fari eftir leiðbeiningum framleiðanda aldursmörk og notkun rafmagnshlaupahjóla.
Rafmagnshlaupahjól
þarf að hafa öflugt hvítt ljós að framan og rautt að aftan
þarf að hafa kveikt á ljósum þegar dimmir
þarf að vera með endurskin á hjólinu, bæði að framan og aftan
má samkvæmt lögum, ekki breyta til að komast hraðar en 25 kílómetra á klukkustund
Engin vátryggingarskylda er á rafmagnshlaupahjólum en eigendur eru hvattir til að leita ráða hjá tryggingafélögum varðandi ábyrgðartryggingar.
Sektir fyrir brot á reglum um rafmagnshlaupahjól
Greiða þarf sektir fyrir brot á sérreglum um reiðhjól að upphæð 20.000 krónur.
Lög og reglur:
Þjónustuaðili
Samgöngustofa