Fara beint í efnið

Skemmtibátaskírteini

Sækja um skemmtibátaskírteini

Viðurkenndir prófdómarar

Þeir sem sækja um skírteini til þess að mega gegna stöðu skipstjóra á skemmtibátum skulu hafa lokið bóklegu og verklegu prófi, sem haldið er af viðurkenndum prófdómurum til samræmis við 4. gr. reglna um próf til skemmtibátaskírteinis nr. 393/2008

Listi yfir prófdómara

Samgöngustofa hefur skipað eftirtalda einstaklinga til þess að gegna stöðu prófdómara í bóklegum og verklegum prófum til skemmtibátaskírteinis:

Prófdómarar bóklegra prófa

 Nafn

 Sími

 Staður

 Björgvin H. Fjeldsted

 8645124

 Hafnarfjörður

 Kjartan Örn Kjartansson

 8951414

 Reykjavík

 Sigríður Guðmunda Ólafsdóttir

 8965874

 Kópavogur

 Vilbergur Magni Óskarsson

 6651120

 Reykjavík

Prófdómarar verklegra prófa á vélskip

 Nafn

 Sími

 Staður

 Björgvin H. Fjeldsted

 8645124

 Hafnarfjörður

 Ísleifur Friðriksson

 6955117

 Seltjarnarnes

 Jón Magnússon

 8614321

 Akureyri

 Kjartan Örn Kjartansson

 8951414

 Reykjavík

 Sigríður Guðmunda Ólafsdóttir

 8965874

 Kópavogur

 Theodór Haraldsson

 8954620 

 Neskaupsstaður

 Þorsteinn Björnsson

 8644338

 Reykjavík

Prófdómarar verklegra prófa á seglskip

 Nafn

 Sími

 Staður

 Björgvin H. Fjeldsted

 8645124

 Hafnarfjörður

 Halldór Sveinbjörnsson

 8946125

 Ísafjörður

 Ísleifur Friðriksson

 6955117

 Seltjarnarnes

 Jón Magnússon

 8614321

 Akureyri

 Jón Pétur Friðriksson

 6942314

 Reykjavík

 Kjartan Örn Kjartansson

 8951414

 Reykjavík

 Sigríður Guðmunda Ólafsdóttir

 8965874

 Kópavogur

 Theodór Haraldsson

 8954620

 Neskaupsstaður

 Þorsteinn Björnsson

 8644338

 Reykjavík

Hlutverk og starfsskilyrði prófdómara

Prófdómarar með bóklegu og verklegu prófi skulu skipaðir af Samgöngustofu til fimm ára í senn. Prófdómarar í verklegu prófi þurfa ekki að vera hinir sömu og gegna stöðu prófdómara í bóklegu prófi. Prófdómari bóklegs prófs skal a.m.k. hafa lokið skipstjórnarnámi til atvinnuskírteinis skv. námsstigi A. Prófdómari verklegs prófs skal a.m.k. vera handhafi sambærilegs skemmtibátaskírteinis. Samgöngustofa eða sá sem hún tilnefnir heldur skrá yfir skipaða prófdómara og skal hafa eftirlit með störfum þeirra.

Prófdómarar hafa yfirumsjón með framkvæmd bóklegra og verklegra prófa og hafa eftirlit með því að próf séu í samræmi við námskrá. Prófdómurum ber að tryggja svo sem kostur er samræmt námsmat.

Prófdómarar skulu vera óháðir og hafa það hlutverk að meta úrlausnir og færni. Enginn getur verið hvort tveggja prófdómari og kennari/prófskipuleggjandi. Telji prófdómari að hann geti verið vanhæfur til þess að gegna þeirri stöðu gagnvart þeim aðila sem annast fræðslu og þjálfun, þeim sem skipuleggur próf eða einstaka umsækjanda, skal hann gera viðvart þar um og fela öðrum prófdómara að meta úrlausnir og færni þegar svo háttar. 

Prófdómurum er skylt að senda samgöngustofu eða þeim sem hún tilnefnir afrit af vottorðum ásamt skýrslu um undirbúning og framkvæmd prófa. Samgöngustofa eða sá sem hún tilnefnir skal halda skrá yfir þá sem öðlast hafa skemmtibátaskírteini og flokkun skemmtibátaskírteina.




Sækja um skemmtibátaskírteini

Þjónustuaðili

Samgöngu­stofa