Uppfærðar leiðbeiningar fyrir akstur hópbifreiða (26.02.21) - ÚR GILDI
vegna COVID-19
Hér má finna uppfærðar leiðbeiningar fyrir akstur hópbifreiða vegna COVID-19 sem Embætti landlæknis og Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra, í samvinnu við Ferðamálastofu og Samgöngustofu, hafa gefið út.
Tilgangurinn leiðbeininganna er að verja bílstjóra og farþega fyrir hugsanlegu smiti.
Leiðbeiningar fyrir akstur hópbifreiða vegna COVID-19
á íslensku og ensku: (ATH: úr gildi, uppfært 28.09.21)
1. Þar sem ekki er unnt að tryggja 2 metra nándarmörk skal nota andlitsgrímu.
2. Börn fædd 2005 og síðar eru undanskilin grímunotkun og nándarmörk.
3. Leiðbeinandi merkingar vegna COVID-19 frá sóttvarnarlækni skulu vera við inngang í bifreiðinni (til útprentunar á íslensku og ensku).
4. Handspritt skal vera við inngang sem farþegar eiga að nota þegar þeir koma inn í bifreiðina.
5. Farþegar skulu ganga rólega með góðu millibili inn og út úr bifreið.
6. Farþegar skulu sitja dreift um bifreiðina. Þeir sem eru í nánum tengslum mega sitja saman.
7. Ef verið er að nýta hópbifreið til að flytja farþega sem eru komnir í sóttkví gildir eftirfarandi:
- Bílstjóri og farþegar skulu nota hlífðargrímu sem hylur nef og munn, alla ferðina.
- Tryggja skal 2 metra nándarmörk á milli ótengdra farþega. Tengdir aðilar eru t.d. úr sömu fjölskyldu, búa á sama heimili, vinahópur/vinnufélagar í nánum tengslum og ferðafélagar. Eins ef að farþegar eru að koma úr sömu flugvél eða úr sama skipi og skulu aðilar þá sitja saman eins og þeir gerðu um borð. Þá þarf að merkja bifreiðina sérstaklega ákveðnu flugi eða skipi.
- Tryggja skal 2 metra nándarmörk á milli farþega og bílstjóra t.d. með því að hafa fyrstu sætaröð auða.
- Almenna reglan er að gengið er inn að aftan og farþegar sjá alfarið um eigin farangur, bæði að ferma og afferma.
- Mikilvægt er að lofta út hvenær sem færi gefst, sérstaklega milli ferða.
- Bílstjóri þrífur og sótthreinsar bílinn eftir ferð skv. leiðbeiningum sóttvarnarlæknis.
Bent er á leiðbeiningar á vef embættis landlæknis til starfsfólks í atvinnulífinu varðandi smitgát og þrif og veggspjald um grímunotkun, á íslensku og ensku.