Almenn undanþága vegna Covid19 – almannaflug, heilbrigðisvottorð og flugkennsla - 31.3.2020

Samgöngustofa hefur gefið út almenna undanþága frá tilteknum kröfum reglugerðar (ESB) 1178/2011 um áhöfn í almenningsflugi vegna ómöguleika í kjölfar Covid19 faraldurs.

Lesa meira

LED-ljós um borð í skipum og bátum - 31.3.2020

Að gefnu tilefni hefur Samgöngustofa gefið út dreifibréf um hvaða hættur geta stafað af LED-ljósum og búnaði þeirra um borð í skipum og bátum.

Lesa meira

Almenn afgreiðsla lokuð - 30.3.2020

Samgöngustofa áréttar að vegna COVID-19 faraldursins er afgreiðsla Samgöngustofu lokuð. Veitt er þjónusta í gegnum síma, netspjall og tölvupóst. Bent er á Mitt svæði þar sem hægt er að ganga frá eigendaskiptum ökutækja.

Lesa meira

Hvað finnst þér um vefinn okkar? - 30.3.2020

Taktu þátt í netkönnun um vefinn okkar - tekur aðeins 3-5 mínútur.

Lesa meira

Öruggur leigubílaakstur - 27.3.2020

Embætti landlæknis, í samvinnu við Samgöngustofu, hefur uppfært leiðbeiningar til leigubílstjóra. Nú gilda varúðarráðstafanir um flutning allra farþega. 

Lesa meira

Verkleg ökukennsla fellur niður - 26.3.2020

Samkvæmt ákvörðun sóttvarnarlæknis um 2ja metra lágmarksfjarlægð milli einstaklinga ber ökukennurum að fella niður verklega ökukennslu meðan ákvörðunin er í gildi. 

Lesa meira

Fréttatilkynning frá Paris MoU - 26.3.2020

Vakin er athygli á fréttatilkynningu frá Paris MoU (Parísarsamkomulagið um hafnarríkiseftirlit). Í tilkynningunni er útlistað hvernig PMoU mun haga sínum verkefnum á tímum COVID-19 og þeim takmörkunum sem ástandið setur. 

Lesa meira

Ráðstafanir varðandi skipsskírteini og skoðanir vegna COVID-19 - 26.3.2020

Hér er lýst ráðstöfunum Samgöngustofu varðandi skipsskírteini og skoðanir í þeirri stöðu, sem hefur skapast vegna COVID-19. Rétt er að taka fram að gildandi samkomubann nær ekki til skipa.

Lesa meira

Álagningu vanrækslugjalda vegna skoðunar ökutækja frestað um mánuð - 26.3.2020

Álagningu vanrækslugjalds þann 1. apríl vegna skoðunar ökutækja verður frestað um einn mánuð til 1. maí vegna COVID-19 faraldursins. Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra hefur staðfest ákvörðunina með reglugerð sem birt verður í Stjórnartíðindum á morgun, 26. mars.

Lesa meira

Atvinnuréttindi sjófarenda á meðan COVID-19 faraldurinn stendur yfir - 26.3.2020

Á meðan Covid-19 faraldur stendur yfir tekur Samgöngustofa við rafrænum umsóknum um atvinnuskírteini sjómanna og afgreiðir fullnægjandi umsóknir. Öll skírteini eru send í pósti, ekki er í boði að sækja skírteini til Samgöngustofu. Í ljósi ástandsins veitir Samgöngustofa framlengingu á gildistíma atvinnuskírteina og vottorða. Nánari upplýsingar í þessari frétt.

Lesa meira

Vegna lokunar Slysavarnarskóla sjómanna - 26.3.2020

Samkvæmt ákvörðun stjórnvalda um samkomubann vegna COVID-19 veirunnar er Slysavarnaskóli sjómanna lokaður tímabundið.

Lesa meira

Bókleg flugpróf - 25.3.2020

Áætlun um bókleg flugpróf hjá Samgöngustofu fyrir árið 2020 hefur verið uppfærð sökum raskana vegna COVID-19 heimsfaraldurs.

Lesa meira

Leiðbeiningar til framlínustarfsmanna vegna COVID-19 - 24.3.2020

Landlæknisembættið hefur gefið út leiðbeiningar til framlínustarfsmanna vegna COVID-19 faraldursins. Um er að ræða leiðbeiningar um þrif á vinnustöðum og farartækjum til fólksflutninga.

Lesa meira

Frammistöðuáætlun í flugleiðsögu 2020-2024 - 24.3.2020

Samgöngustofa hefur nú gefið út fyrstu útgáfu Frammistöðuáætlunar Íslands, fyrir viðmiðunartímabilið 2020-2024. Skilgreindir voru lykil-frammistöðuvísar (KPI) fyrir öryggi, umhverfi, afköst og kostnaðarhagkvæmni.

Lesa meira

Reglugerð um takmarkanir fyrir ferðamenn utan Schengen - 21.3.2020

Dómsmálaráðherra kynnti þann 20. mars 2020 í ríkisstjórn reglugerð sem gefin var út síðar sama dag. Með henni verður útlendingum, sem hvorki eru EES- né EFTA-borgarar, óheimilt að koma til landsins nema þeir geti sýnt fram á að för þeirra sé vegna brýnna erinda.

Lesa meira

Frestun gildistöku nýrrar gjaldskrár - 20.3.2020

Í samráði við samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur Samgöngustofa ákveðið fresta gildistökunni nýrrar gjaldskrár til 1. september næstkomandi.

Lesa meira

Leiðbeiningar til leigubílstjóra vegna COVID-19 - 20.3.2020

Samgöngustofa hefur, í samvinnu við sóttvarnarlækni og leigubílastöðvar, gefið út leiðbeiningar til leigubílstjóra vegna flutnings farþega í sóttkví eða með mögulegt COVID-19 smit en einkennalausir.

Lesa meira

Atvinnuleyfi til leiguaksturs - 19.3.2020

Samgöngustofa mun fresta úthlutun atvinnuleyfa til leiguaksturs tímabundið sem samkvæmt hefð átti að vera í byrjun apríl. 

Lesa meira

Uppfærð gjaldskrá Samgöngustofu - 18.3.2020

Gjaldskrá Samgöngustofu hefur verið uppfærð í samræmi við auglýsingu samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins.

Lesa meira

Ökukennsla - 15.3.2020

Vegna Covid-19 faraldursins beinir Samgöngustofa þeim tilmælum til þeirra sem koma að ökukennslu að kynna sér þær leiðbeiningar sem sóttvarnalæknir og almannavarnir hafa gefið út. Haldgóðar upplýsingar um hvernig skuli bera sig að í samskiptum við annað fólk er að finna á www.covid.is 

Lesa meira

Breyting á afgreiðslu – aukin áhersla á fjarþjónustu - 13.3.2020

Vegna COVID-19 faraldursins er almenn afgreiðsla Samgöngustofu í Ármúla lokuð frá og með mánudeginum 16. mars 2020.Viðskiptavinum er bent á að að kynna sér þær leiðir sem eru í boði til að ganga frá nauðsynlegum erindum meðan þetta ástand varir.

Lesa meira

Nýtt skipurit Samgöngustofu - 1.3.2020

Í dag tóku í gildi breytingar á skipulagi Samgöngustofu. Miða þær að því að þróa starfsemina og aðlaga að umsvifum samfélagsins, auka hagkvæmni og styrkja samræmi og jafnvægi milli sviða.

Lesa meira