Árlegur minningardagur um þá sem látist hafa í umferðarslysum
Sunnudaginn 16. nóvember verður þeirra minnst sem látist hafa í umferðarslysum á Íslandi. Efnt verður í fjórða sinn til þessarar athafnar en hliðstæðir viðburðir eiga sér stað víða um heim að tilhlutan Sameinuðu þjóðanna sem hafa tileinkað þriðja sunnudag í nóvember þessari minningu.
Athöfnin verður við bráðamóttöku Landspítala Háskólasjúkrahúss í Fossvogi í Reykjavík og hefst hún klukkan 11. Að loknum ávörpum forseta Íslands og innanríkisráðherra segja tveir einstaklingar frá lífsreynslu sinni eða störfum tengdum umferðarslysum. Þá verður boðað til einnar mínútu þagnar klukkan 11:15.
Við þetta tilefni verða einnig heiðraðar þær starfsstéttir sem koma að björgun og aðhlynningu þegar umferðarslys verður. Eru þeim með þeim hætti færðar þakkir fyrir það mikilvæga og óeigingjarna starf sem þær sinna á sviði slysamóttöku og meðferðar.
Gert er ráð fyrir að ein af þyrlum Landhelgisgæslunnar lendi á þyrlupalli bráðamóttökunnar rétt fyrir athöfnina og í kjölfar þess verður ökutækjum viðbragðsaðila stillt upp við þyrluna. Má þar nefna lögreglubíla og bifhjól, sjúkrabíla, slökkviliðsbíla, björgunarsveitarbíla og fleiri.
Landsmenn eru hvattir til að nota þennan dag til að leiða hugann að minningu þeirra sem látist hafa í umferðinni og jafnframt íhuga þá ábyrgð sem hver og einn ber sem þátttakandi í umferðinni.