Fundur með bifhjólafólki

20.4.2015

Samgöngustofa boðar til sérstaks fundar um málefni og öryggi bifhjólamanna mánudaginn 27. apríl klukkan 18:00 í húsakynnum stofnunarinnar, Ármúla 2. Fundurinn er opinn öllu bifhjólafólki sem láta sig bifhjól og bifhjólmenningu varða. 
Ætlunin er að kynna slysatölfræði ársins 2014 þar sem bifhjólamenn koma við sögu. Fjallað verður um helstu breytingar á umferðarlögum er varða akstur bifhjóla. Rætt verður um ýmiss forvarnarmál og m.a. ástand gatna og vega eftir veturinn og hvernig best sé að tryggja öryggi bifhjólamanna við þær erfiðu aðstæður sem nú eru. Ýmislegt annað verður á dagskrá fundarins og áhersla er lögð á uppbyggilega og góða umræðu sem tryggt geti sem best öryggi okkar bifhjólamanna.