Göngum í skólann

8.9.2015

Í Lágafellsskóla í fyrramálið, 9. september, mun Ólöf Nordal innanríkisráðherra hleypa af stokkunum verkefninu Göngum í skólann. Markmið verkefnisins eru að hvetja börn til að ganga í og úr skóla og auka færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni. Þetta er níunda árið sem þetta verkefni er unnið hér á landi.

Göngum í skólann er samstarfsverkefni Samgöngustofu, Íþrótta – og Ólympíusambands Íslands, Ríkislögreglustjóra, Embættis landlæknis, mennta- og menningamálaráðuneytis, Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Heimilis og skóla.

Nýr umferðarvefur – umferd.is

Samgöngustofa mun nota þetta tækifæri til að opna endurhannaðan umferðarvef www.umferd.is sem er samvinnuverkefni Samgöngustofu og Grundaskóla á Akranesi, móðurskóla umferðarfræðslu. Umferðarvefurinn er ætlaður nemendum, kennurum og foreldrum og inniheldur skemmtilega umferðarfræðslu fyrir börn sem er ætlað að auka öryggi þeirra í umferðinni. Meðal nýrra verkefna má nefna bókaflettara þar sem nemendur geta æft sig í lestri um leið og þeir fræðast um mikilvægar umferðarreglur. Samhliða lestrinum getur nemandinn hlustað á upplestur Sigrúnar Eddu Björnsdóttur leikkonu.

Dagskrá opnunarhátíðarinnar hefst kl. 08:30:

  •  Nemendur, kennarar og aðrir gestir mæta á sal.
  •  Jóhanna skólastjóri býður gesti velkomna.
  •  Lárus Blöndal forseti ÍSÍ stýrir dagskránni.
  •  Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar flytur stutt ávarp.
  •  Ólöf Nordal innanríkisráðherra flytur stutt ávarp og opnar nýjan umferðarvef.
  •  Tónlistaratriði frá Lágfellsskóla.
  •  María Ólafsdóttir syngur nokkur lög.
  •  Aðstandendur verkefnisins, Ólöf Nordal, innanríkisráðherra, Haraldur Sverrisson bæjarstjóri Mosfellsbæjar, starfsfólk og nemendur Lágafellsskóla setja Göngum í skólann með viðeigandi hætti með því að ganga af stað.