Viðskiptavinir athugið
Í tilefni af 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna á Íslandi hvetur ríkisstjórn Íslands vinnuveitendur til að gefa starfsfólki frí frá hádegi föstudaginn 19. júní, svo það geti tekið þátt í skipulögðum hátíðahöldum. Samgöngustofa styður jafnrétti og því verður stofnunin lokuð frá kl. 12 þann dag.