Aðgerðir á landamærum frá 9. apríl 2021 - breytt skilyrði um dvöl í sóttkvíaðgerðir vegna COVID-19

9.4.2021

Frá og með 9. apríl 2021 eru gerðar skýrari kröfur um skilyrði fyrir heimasóttkví varðandi húsnæði og umgengnisreglur. Þeir sem ekki geta verið í heimasóttkví sem uppfyllir sett skilyrði þurfa að fara í sóttvarnahús en ekkert gjald verður tekið fyrir dvölina. Þetta er meðal efnis reglugerðar heilbrigðisráðherra sem tekur gildi 9. apríl og byggist á tillögum sóttvarnalæknis. Meginmarkmiðið er að lágmarka eins og kostur er líkur á því að smit berist inn í landið, með þeim aðgerðum sem sóttvarnalög heimila. Með reglugerðinni er felld úr gildi reglugerð nr. 355/2021 sem tók gildi 1. apríl og þar með ákvæði um skyldu einstaklinga af hááhættusvæðum til að dvelja í sóttkví í sóttvarnahúsi sem héraðsdómur úrskurðaði að ekki væri fullnægjandi lagastoð fyrir.

Helstu reglur um sóttkví og sýnatöku á landamærum frá og með 9. apríl:

  • Sömu reglur gilda um alla farþega, óháð því hvaðan þeir koma: Sóttvarnaaðgerðir á landamærum taka jafnt til allra, óháð því hvort þeir koma frá löndum sem skilgreind eru sem áhættusvæði eða ekki.
  • Sýnataka og sóttkví: Öllum sem koma til landsins verður sem fyrr skylt að fara í sýnatöku á landamærunum, fimm daga sóttkví og aðra sýnatöku við lok hennar (sjá þó nánar um börn hér að neðan og sýnatöku hjá einstaklingum með vottorð). Fólki er heimilt að vera í heimasóttkví að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Þeir sem hafa ekki tök á að vera í heimasóttkví og/eða kjósa frekar að dvelja í sóttvarnahúsi eiga kost á því og er dvölin þar viðkomandi að kostnaðarlausu.
  • Kröfur til heimasóttkvíar: Þeir sem eru í sóttkví þurfa að vera í húsnæði sem uppfyllir skilyrði og umgengnisreglur samkvæmt nýjum leiðbeiningum sóttvarnalæknis. Í því felst að einstaklingur skuli vera einn á dvalarstað en ef fleiri dveljast þar þurfa þeir að sæta öllum sömu skilyrðum sóttkvíar. Þeir sem ekki geta dvalið í heimasóttkví sem uppfyllir skilyrði sóttvarnalæknis þurfa að dvelja í sóttvarnahúsi.
  • Brot á heimasóttkví: Gerist einstaklingur uppvís að því að brjóta heimasóttkví getur sóttvarnalæknir ákveðið að hann skuli ljúka sóttkví í sóttvarnahúsi.
  • Sóttvarnahús: Þeir sem ekki hafa tök á að vera í heimasóttkví og/eða kjósa frekar að dvelja í sóttvarnahúsi eiga kost á því. Dvölin er viðkomandi að kostnaðarlausu. Þeim sem dvelja í sóttvarnahúsi verður gert kleift að njóta útiveru og sérstakt tillit verður tekið til barna, s.s. varðandi útiveru og annan aðbúnað.
  • Sýnataka og sóttkví barna: Börn fædd 2005 eða síðar fara í sýnatöku á landamærunum. Ferðist barn með einstaklingi sem skylt er að sæta sóttkví dvelur barnið þar með honum og losnar úr sóttkví ef síðara sýni úr samferðamanni er neikvætt. Ef samferðamaðurinn er undanþeginn sóttkví er barnið það sömuleiðis. Barn sem ferðast eitt þarf ekki að fara í sóttkví.
  • Sýnataka hjá einstaklingum með vottorð: Krafa um sýnatöku hjá einstaklingum með bólusetningarvottorð eða vottorð um fyrri sýkingu er sett vegna vísbendinga um að þessir einstaklingar geti borið smit. Þeir þurfa ekki að sæta sóttkví en skulu bíða niðurstöðu úr sýnatöku á dvalarstað. Krafan er tímabundin og verður endurskoðuð fyrir 1. maí.
  • Aukið eftirlit og hærri sektir: Sóttvarnalæknir leggur til að eftirlit með einstaklingum í heimasóttkví verði aukið í samvinnu við almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og jafnframt að sektir fyrir brot á sóttkví verði hækkuð til muna. Heilbrigðisráðherra hefur komið tillögum sóttvarnalæknis varðandi þetta á framfæri við ríkissaksóknara og ríkislögreglustjóra.

Frekari upplýsingar má finna á vef Stjórnarráðs Íslands
Reglugerðin (óbirt)
Minnisblað sóttvarnalæknis