Bann við flugi dróna vegna æfinga NATO

24.6.2020

Tilkynning um bann lögreglu við flugi dróna/fjarstýrðra loftfara á tilteknu svæði, sbr. 4. tl. 12. gr. reglugerðar um starfrækslu fjarstýrðra loftfara nr. 990/2017

Vegna komu herskipa og kafbáta NATO sem verða við landið vegna Dynamic Mongoose æfingarinnar verður óheimilt að fljúga dróna (fjarstýrðu loftfari) innan 400 metra radíusar frá skipunum og kafbátunum, bæði meðan þau eru innan íslenskrar landhelgi og meðan þau liggja við Skarfabakka við Sundahöfn.

Bannið gildir frá 25. júní til og með 29. júní 2020.