Flugnám - takmarkanir á samkomum rýmkaðar
Breytingar á reglugerðum um takmarkanir á samkomum vegna farsóttar taka gildi 13. janúar og gilda til og með 17. febrúar nk. Starfsemi og þjónusta sem krefst snertingar milli fólks verður áfram leyfð með þeim skilyrðum að notast sé við andlitsgrímur og á það við um verklegt flugnám. Hámarksfjöldi í sama rými, á sama tíma, er 20 manns.
Varðandi bóklegt nám skal tryggja 2 metra nálægðartakmörkun, tryggja að ekki séu á sama tíma fleiri en tuttugu einstaklingar inni í sama rými og að ekki sé samgangur milli rýma.
Sjá nánar REGLUGERÐ um takmörkun á samkomum vegna farsóttar nr. 5/2021