Innleiðing á nýrri námskrá fyrir bóklegt ATPL nám

2.4.2020

Flugöryggisstofnun Evrópu (EASA) hefur gefið út nýja námskrá fyrir bóklegt atvinnuflugmannsnám sem tekur gildi á næstunni. Flugskólum á Íslandi hefur verið gert að innleiða þá námskrá fyrir bókleg námskeið sem hefjast eftir 31. maí 2020. Samgöngustofa vill vekja athygli á því að um er að ræða talsverðar breytingar á uppbyggingu bóklegs ATPL náms sem snertir þá nemendur sem hefja nám eftir þann tíma, þ.m.t. frekari þjálfun vegna endurupptöku á ATPL prófum.

Helstu breytingar í nýrri ATPL námskrá:

  • Námskrá uppfærð og námsmarkmið í mörgum tilfellum færð á milli próffaga;
  • Eldri námsmarkmið uppfærð, eða eytt, og nýjum bætt við í flestum próffögum. Það er gert í samræmi við tækniþróun, breyttar verklagsreglur og nýjar áherslur í fluggeiranum;
  • Próffögin „091 – VFR COM“ og „092 – IFR COM“ hafa verið sameinuð í eitt: „090 – Communications“;
  • Nýju fagi, „Area 100 – Knowledge, Skills and Attitudes (KSA)“, hefur verið bætt inn í námskrá. Athugið að ekki verður prófað úr því fagi í prófum hjá Samgöngustofu. Nemendum er gert að standast öll viðeigandi próf og lokanámsmat í Area 100 – KSA hjá sínum flugskóla áður en þeir hefja fyrstu tilraun við sitt síðasta próffag í prófum Samgöngustofu.

Nemendur sem hefja próftöku sína fyrir 31. ágúst 2020 (þjálfaðir skv. eldri námskrá) gefst færi á að klára sín próf á eðlilegum tíma, í 6 setum á 18 mánuðum. Eftir 31. janúar 2022 verður eingöngu prófað eftir nýrri námskrá. Tveir spurningabankar verða keyrðir samhliða fyrir sitthvorn hópinn þangað til. Sérstök athygli er vakin á því að eldri nemendum verður ekki heimilt að hefja nýja tilraun við bókleg ATPL próf skv. eldri námskrá eftir 31. ágúst 2020 (t.d. við fall á prófum Samgöngustofu). Líkt og áður er þeim nemendum gert að leita frekari þjálfunar hjá sínum flugskóla.

Nemendum er bent á að leita til síns flugskóla með fyrirspurnir í tengslum við framangreindar breytingar. Gildandi reglugerð má finna í heild sinni á vef EASA.

Sjá nánar á vef Samgöngustofu:

Upplýsingar um nýja ATPL-námskrá

 

Upplýsingar um fagið "Area 100 – Knowledge, Skills and Attitudes (KSA)"