Leiðbeiningar fyrir flugvelli og flugáhafnir (uppfærðar 1. júní 2021)

1.6.2021

Embætti landlæknis, í samvinnu við Samgöngustofu, hefur nú gefið út uppfærðar leiðbeiningar fyrir flugvelli og flugáhafnir sem sinna farþegaflugi og vöruflutningum í millilandaflugi vegna COVID-19. Útgáfudagur er 1. júní 2021 en leiðbeiningarnar hafa verið og verða uppfærðar eftir þörfum.

Markmiðið er að stuðla að heilbrigðu og öruggu umhverfi fyrir farþega, flugvallarstarfsmenn, flugáhafnir og viðbragðsaðila á flugvöllum og í flugi. Leiðbeiningarnar eru byggðar á COVID-19 Aviation Health Safety Protocol. Guidance for the management of airline passengers in relation to the COVID-19 pandemic sem Flugöryggisstofnun Evrópu (EASA) gaf út fyrr á árinu í samvinnu við Sóttvarnarstofnun Evrópu (ECDC) um viðbrögð við COVID-19. Samgöngustofa tekur þátt í samstarfi Evrópuríkja og fylgist með þróun á alþjóðavettvangi.