Námskeið fyrir prófdómara

4.1.2019

Samgöngustofa mun halda námskeið fyrir prófdómara flugskírteina fimmtudaginn 14. mars nk. kl. 10 til 16, í húsnæði Samgöngustofu,
Ármúla 2.

Skilyrði fyrir endurnýjun/framlengingu og frumútgáfu prófdómararéttinda er að umsækjandi hafi setið slíkt námskeið á sl. 12 mánuðum.
Vinsamlegast sendið skráningu með tölvupósti á netfangið fcl@icetra.is eigi síðar en 1. mars nk. Námskeiðsgjald er 34.880 kr. og eru innifaldar veitingar meðan á námskeiði stendur.