Námskeið fyrir prófdómara flugskírteina
Samgöngustofa mun halda námskeið fyrir prófdómara flugskírteina í mars. Námskeiðið verður haldið með fjarfundabúnaði og skiptist á tvo daga, miðvikudaginn 10. mars og fimmtudaginn 11. mars. Nánari tímasetning auglýst síðar. Skyldumæting er báða dagana.
Skilyrði fyrir endurnýjun/framlengingu og frumútgáfu prófdómararéttinda er að umsækjandi hafi setið slíkt námskeið á sl. 12 mánuðum.
Vinsamlegast sendið skráningu með tölvupósti á netfangið fcl@icetra.is eigi síðar en 1. mars. Námskeiðsgjaldið er 35.752 kr.