Námskeið fyrir prófdómara flugskírteina

23.6.2021

Samgöngustofa mun halda námskeið fyrir prófdómara flugskírteina fimmtudaginn 26. ágúst í húsnæði Samgöngustofu, Ármúla 2, frá kl. 10:00 til 16:00.

Skilyrði fyrir endurnýjun/framlengingu og frumútgáfu prófdómararéttinda er að umsækjandi hafi setið slíkt námskeið á síðastliðnum 12 mánuðum.

Vinsamlegast sendið skráningu með tölvupósti á netfangið fcl@icetra.is eigi síðar en 16. ágúst næstkomandi.

Námskeiðsgjaldið er 35.752 kr. og innifaldar eru veitingar meðan á námskeiði stendur.