Námskeið fyrir prófdómara flugskírteina
Samgöngustofa mun halda námskeið fyrir prófdómara flugskírteina fimmtudaginn 25. ágúst 2022 í húsnæði Samgöngustofu, Ármúla 2, frá kl. 10:00 til 16:00.
Skilyrði fyrir endurnýjun/framlengingu og frumútgáfu prófdómararéttinda er að umsækjandi hafi setið slíkt námskeið á síðastliðnum 12 mánuðum.
Vinsamlegast sendið skráningu með tölvupósti á netfangið fcl@icetra.is eigi síðar en 15. ágúst næstkomandi.
Þátttakendur eru beðnir um að hafa með sér spjald- eða fartölvu á námskeiðið, ef mögulegt.
Námskeiðsgjaldið er samkvæmt gildandi gjaldskrá Samgöngustofu, innifaldar eru veitingar meðan á námskeiði stendur.