Námskeið fyrir prófdómara flugskírteina

10.11.2022

Samgöngustofa mun halda námskeið fyrir prófdómara flugskírteina fimmtudaginn 19. janúar 2023 í húsnæði Samgöngustofu, Ármúla 2, frá kl. 10:00 til 16:00.

Skilyrði fyrir endurnýjun/framlengingu og frumútgáfu prófdómararéttinda er að umsækjandi hafi setið slíkt námskeið á síðastliðnum 12 mánuðum.

Vinsamlegast sendið skráningu með tölvupósti á netfangið fcl@icetra.is eigi síðar en 9. janúar næstkomandi.

Þátttakendur eru beðnir um að hafa með sér spjald- eða fartölvu á námskeiðið, ef mögulegt.

Námskeiðsgjaldið er samkvæmt gildandi gjaldskrá Samgöngustofu og er 37.540 kr. Innifaldar eru veitingar meðan á námskeiði stendur.