Námskeið fyrir prófdómara flugskírteina
Samgöngustofa mun halda námskeið fyrir prófdómara flugskírteina þann 1. mars nk. í húsnæði Samgöngustofu, Ármúla 2, frá kl. 10:00 til 16:00.
Skilyrði fyrir endurnýjun/framlengingu og frumútgáfu prófdómararéttinda er að umsækjandi hafi setið slíkt námskeið á sl. 12 mánuðum.
Vinsamlegast sendið skráningu með tölvupósti á netfangið fcl@icetra.is eigi síðar en 28. febrúar nk.
Námskeiðsgjaldið er 34.880.- og innifaldar eru veitingar meðan á námskeiði stendur.