Tilmæli til flugverja og flugumferðarstjóra vegna Covid 19 bólusetningar

15.4.2021

Samgöngustofa vekur athygli flugrekenda og flugverja á því að Flugöryggisstofnun Evrópu hefur gefið út öryggistilmæli varðandi Covid19 bólusetningar flugmanna og öryggis- og þjónustuliða. Samkvæmt þeim hvetur stofnunin áhafnarmeðlimi til að þiggja bóluefni þegar það stendur til boða og beinir því til þeirra að taka amk. 48 klst. frá hvorri bólusetningarsprautu til að kanna hvort beri á verulegum aukaverkunum eða ofnæmisviðbrögðum áður en þeir taka aftur til starfa um borð í loftfari. Þennan tíma ætti að lengja í 72 klukkustundir þegar um starfrækslu loftfars í einstjórnarumhverfi er að ræða.

Samgöngustofa mælist einnig til að flugumferðarstjórar taki 48 klukkustundir frá hvorri bólusetningarsprautu áður en þeir taka við stjórn á flugumferð.

Sjá nánar: https://ad.easa.europa.eu/ad/2021-06