Upprifjunarnámskeið
Samgöngustofa mun halda upprifjunarnámskeið fyrir prófdómara fyrir flugskírteini þann 17. mars nk. Skilyrði fyrir endurnýjun/framlengingu prófdómararéttinda er að umsækjandi hafi setið slíkt námskeið á sl. 12 mánuðum fyrir endurnýjun/framlengingu.
Námskeiðið verður haldið í Flugröst, Nauthólsvegi 99 frá kl. 10:00 til 16:00.
Vinsamlegast sendið skráningu með tölvupósti á netfangið fcl@icetra.is eigi síðar en 11. mars nk.