Afgreiðslutími um jólin
Frá kl. 12 á hádegi á Þorláksmessu verður aðeins opið í þjónustudeild og þriðjudaginn 27. desember verður lokað hjá Samgöngustofu. Að öðru leyti verður afgreiðslutími með venjubundnum hætti.
Starfsfólk Samgöngustofu óskar landsmönnum gleðilegra jóla og öruggra ferða um hátíðirnar.
Lesa meiraÍsland.is óvirkt í stuttan tíma
Vegna viðhalds verður innskráningarþjónusta Ísland.is óvirk þann 8. nóvember 2016 á milli kl. 20:00 og 20:30 og verður hvorki hægt að skrá sig inn með Íslykli né rafrænum skilríkjum.
Lesa meiraUppfærsla á lögskráningarkerfi
Lögskráningarkerfi Samgöngustofu verður uppfært nk. þriðjudag, 8. nóvember, kl. 15. Gert er ráð fyrir að kerfið muni liggja niðri í um eina klukkustund.
Lesa meiraMorgunfundur starfsfólks á föstudaginn
Föstudaginn 4. nóvember byrjar starfsfólk Samgöngustofu daginn á morgunfundi sem er liður í því að efla starfsemina. Þann dag mun afgreiðslan opna kl. 10, strax eftir fundinn.
Lesa meiraBreyting á heilbrigðiskröfum farmanna á farþega- og flutningaskipum
Frá og með 1. janúar 2017 verða heilbrigðisvottorð farmanna aðeins gefin út af læknum sem hafa fengið viðurkenningu Samgöngustofu.
Lesa meiraSannprófun á brúttóþunga pakkaðra gáma
Mjög mikilvægt er að þekkja nákvæman brúttóþunga pakkaðra gáma til að tryggja rétta lestun, stöðugleika, stöflun og frágang með það í huga að koma í veg fyrir að gámastæður hrynji eða gámar fari fyrir borð.
Lesa meiraÁrangursstjórnunarsamningur
Innanríkisráðherra og forstjóri Samgöngustofu undirrituðu í dag árangursstjórnunarsamning milli innanríkisráðuneytisins og Samgöngustofu
Lesa meiraStarfsdagur Samgöngustofu föstudaginn 1. apríl
Vegna starfsdags Samgöngustofu, föstudaginn 1. apríl, verður þann dag frá kl. 12:00 á hádegi aðeins opið í afgreiðslu þjónustuvers. Bent er á að Mitt svæði er opið allan sólarhringinn, en þar má skrá kaup og sölu ökutækja og sinna umsýslu þeirra.
Lesa meiraEndurskoðun á íslenskum LOCODES
LOCODE er sérstakt auðkenni á höfn, flugvelli, járnbrautarstöð eða slíkum stað til að auðvelda alþjóðleg viðskipti. Listi yfir íslensk auðkenni er uppfærður reglulega. Hægt er að senda tillögur um breytingar á listanum til Samgöngustofu fyrir 1. mars nk.
Lesa meira