Hvað er svona merkilegt við það?

23.9.2019

Herjolfur-final Í ár er Alþjóðasiglingadagurinn helgaður konum undir yfirskriftinni „Empowering women in the Maritime community“. Af því tilefni standa samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið og Siglingaráð og fyrir ráðstefnu um konur og siglingar fimmtudaginn 26. september 2019 undir yfirskriftinni Hvað er svona merkilegt við það?

Í engri starfsstétt á Íslandi er hlutfall kvenna jafnlágt og á sjó. Markmið ráðstefnunnar er að vekja athygli á fjölbreyttum atvinnumöguleikum í siglingum jafnt fyrir konur og karla. Á ráðstefnunni munu innlendir og erlendir fyrirlesarar fjalla um sögu íslenskra kvenna á sjó, segja frá starfsvali sínu og deila sinni reynslu af samvinnu og sambúð kynjanna í siglingum. Þá verður leitað svara við því hvers vegna konur eru svo fáar til sjós og í siglingum og hvernig megi gera störf til sjávar eftirsóknarverð fyrir konur. Forseti Íslands opnar ráðstefnuna og samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra flytur lokaávarp.

Ráðstefnan verður haldin í Kaldalóni í Hörpu og er opin öllum. Fundarstjóri er Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu.

Skráning á ráðstefnuna

Dagskrá ráðstefnunnar