Leiðbeiningar fyrir stjórnendur farþegaskipa
Samgöngustofa, Umhverfisstofnun og Landhelgisgæsla Íslands hafa gefið út leiðbeiningar fyrir stjórnendur farþegaskipa sem koma til Íslands. Í leiðbeiningunum er að finna yfirlit yfir ákvæði í íslenskri löggjöf sem gilda um siglingar farþegaskipa við Ísland og varða siglingaöryggi, mengunarvarnir og náttúruvernd. Þar er einnig að finna nokkur tilmæli stofnananna til farþegaskipa.
Leiðbeiningunum er meðal annars ætlað að tryggja að ferðir og ferðaáætlanir farþegaskipa á sjó og á landi fari ekki í bága við umhverfis- og náttúruverndarlöggjöf á Íslandi. Leiðbeiningarnar eru gefnar út á rafrænu formi, bæði á íslensku og ensku, og eru aðgengilegar á heimasíðum stofnananna.
Markmið með leiðbeiningunum eru m.a. að:
1. Að tryggt verði að stjórnendur farþegaskipa fari að íslenskum lögum og reglugerðum.
2. Að ferðir og ferðaáætlanir farþegaskipa á sjó og á landi fari ekki í bága við umhverfis- og náttúruverndarlöggjöf á Íslandi.
3. Að vekja athygli stjórnenda farþegaskipa á öryggi skipanna og farþega þeirra við og á Íslandi.