Auglýsing um útboð á Ísafirði

4.3.2013

Ísafjörður, Mávagarður

Hafnir Ísafjarðarbæjar óska eftir tilboðum í verkið „Ísafjörður - stálþil Mávagarði, þekja og lagnir“. Um er að ræða þekju og lagnir á stálþilsbakka við Mávagarð.

Helstu magntölur:
Bygging veituhúss. 12.5 m²
Leggja vatns og ídráttarlagnir
Steypa þekju 920m²
Ganga frá raflögnum og lýsingu

Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. október 2013.

Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Siglingastofnunar, Vesturvör 2 í Kópavogi og á tæknideild Ísafjarðarbæjar frá og með miðvikudeginum 6. mars 2013, gegn 5.000,- kr. greiðslu.

Tilboð verða opnuð á sömu stöðum miðvikudaginn 27. mars, 2013 kl. 11.00.