Samgöngustofa textar mynd Háskólans í Cardiff um andlegt álag á sjó

28.12.2022

IsltextiFatique

Rétt fyrir jól var íslenskur texti settur á fræga fræðslumynd Háskólans í Cardiff í Wales um andlegt álag á sjó „Seafarers fatique“. Myndin er búin að vera aðgengileg á Youtube á ensku og að frumkvæði Samgöngustofu var ákveðið að höfðu samráði við Slysavarnaskóla sjómanna að láta útbúa íslenskan texta.

Í myndinni eru tekin viðtöl við sérfræðinga sem rannsakað hafa þessi mál og gefa þeir innsýn hvernig þessi mál hafa orðið meira áberandi um allan heim á síðustu árum.

Einnig má geta þess að rannsóknir hafa verið gerðar á þessu málum hér á Íslandi og eru til þrjá skýrslur sem eru aðgengilegar á vef Samgöngustofu.