Styrkir til hugvitsmanna
til verkefna sem ætlað er að auka öryggi sjófarenda
Samgöngustofa auglýsir eftir umsóknum um styrki til ýmissa rannsóknarverkefna sem tengjast öryggi skipa, atvinnu sjómanna, farþega og búnaðar um borð í skipum sem og verkefna sem snúa að heilsusamlegu umhverfi sjófarenda.
Gert er ráð fyrir að veita styrki til einstaklinga og/eða félaga sem koma með tillögur að lausnum í þessa átt. Heildarstyrkupphæðin hljóðar upp á 2.500.000 krónur að hámarki og er öllum frjálst að sækja um.
Umsóknarfrestur er til 15. maí 2018 og skal senda umsókn á netfangið jonb@samgongustofa.is. Umsókninni skal fylgja útfyllt eyðublað sem finna má hér á Word formi og hér á pdf formi og greinargóð lýsing á verkefninu í heild sem og greinargerð fyrir því hvaða hluta verkefnisins styrkurinn mun nýtast í.
Nánari upplýsingar um styrkinn má finna hér.