Öryggi barna í bílum 2017 - 20.11.2017

Nú liggja fyrir niðurstöður könnunar sem starfsfólk Samgöngustofu og félagar í Slysavarnadeildum Slysavarnafélagsins Landsbjargar gerðu á öryggi barna í bílum núna í haust. Könnunin var gerð við 56 leikskóla í 29 þéttbýliskjörnum víða um land og var búnaður hjá 2.060 börnum kannaður. Sambærilegar kannanir hafa verið gerðar undanfarin 32 ár. 

Lesa meira

Alþjóðlegur minningardagur fórnarlamba umferðarslysa - 20.11.2017

Minningardagur um þá sem látist hafa í umferðarslysum var haldinn í sjötta sinn hér á landi sunnudaginn 19. nóvember. Þessi dagur hefur ekki aðeins verið tileinkaður minningu látinna í umferðinni heldur hefur jafnframt skapast sú venja hér á landi að heiðra þær starfsstéttir sem koma að björgun og aðhlynningu þegar umferðarslys verður.   

Lesa meira

Minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa - 16.11.2017

Sunnudaginn 19. nóvember verður þeirra minnst sem látist hafa í umferðarslysum á Íslandi. Efnt verður til þessarar athafnar í sjötta sinn og er hliðstæð athöfn víða um heim að tilhlutan Sameinuðu þjóðanna sem hafa tileinkað þriðja sunnudag í nóvember þessari minningu.

Lesa meira