Almenn afgreiðsla lokuð
Samgöngustofa áréttar að vegna COVID-19 faraldursins er almenn afgreiðsla Samgöngustofu lokuð. Veitt er þjónusta í gegnum síma, netspjall og tölvupóst. Bent er á Mitt svæði þar sem hægt er að ganga frá eigendaskiptum ökutækja.
Í undantekningartilfellum má skilja eftir gögn í póstkassa í anddyri Samgöngustofu. Aðeins er þar tekið við eftirtöldu:
- Gögnum vegna forskráningar ökutækja
- Númeraplötum til innlagningar en þeim má einnig skila til skoðunarstöðva
- Eyðublaði um eigendaskipti ökutækja en aðeins ef ekki er mögulegt að nýta rafræna þjónustu á Mínu svæði
Þeim umsóknum sem ekki er hægt að skila inn rafrænt
Athygli er vakin á því að það þarf að vera búið að greiða fyrir þjónustuna fyrirfram með millifærslu eða láta fylgja með kreditkortanúmer sem hægt er að skuldfæra af. Reikningsnúmer Samgöngustofu er: 515-26-210867 kt: 540513-1040.
Til að gæta 2ja metra aðskilnaðar hafa verið settar upp sérstakar merkingar fyrir framan inngang Samgöngustofu. Aðeins tveir viðskiptavinir mega vera í anddyri samtímis. Viðskiptavinir sem telja sig nauðsynlega þurfa að koma í Ármúla 2 meðan á samkomubanni stendur eru beðnir um að:
- virða kröfu um 2ja metra aðskilnað milli fólks
- nota spritt fyrir og eftir afhendingu gagna
- gæta ávallt fyllstu varúðar
Breyting á afgreiðslu vegna COVID-19
Helstu upplýsingar og ákvarðanir Samgöngustofu vegna COVID-19