Almenn afgreiðsla lokuð
Vegna breyttra reglna í tengslum við COVID-19 faraldurinn verður almenn afgreiðsla Samgöngustofu í Ármúla lokuð frá og með fimmtudeginum 25. mars 2021. Viðskiptavinum er bent á að kynna sér þær leiðir sem eru í boði til að ganga frá nauðsynlegum erindum meðan þetta ástand varir:
- Mitt svæði opið allan sólarhringinn alla daga ársins. Hægt er að ganga alfarið frá eigendaskiptum ökutækja á Mínu svæði .
- Netspjall Samgöngustofu á www.samgongustofa.is (neðst í hægra horninu). Opið frá 9-15 alla virka daga.
- Póstkassi er í anddyri Samgöngustofu fyrir móttöku gagna. Leiðbeiningar eru á kassanum varðandi þau gögn sem tekið er á móti.
- Símaver Samgöngustofu opið alla virka daga frá kl. 9-15. Sími 480 6000.
- Netfangið samgongustofa@samgongustofa.is varðandi almenn erindi og neytendur@samgongustofa.is varðandi réttindi farþega.
- Vefur Samgöngustofu www.samgongustofa.is þar sem upplýsingar verða uppfærðar reglulega.
- Á vef Samgöngustofu er sérstök upplýsingasíða um réttindi farþega vegna COVID-19 faraldursins.
-
Þessar upplýsingar verða uppfærðar með reglubundnum hætti á þessari síðu hér.