Göngum í skólann 2016

6.9.2016

Í Akurskóla í Reykjanesbæ í  fyrramálið, 7. september  kl 9:00 verður verkefninu „Göngum í skólann“ hleypt af stokkunum. Markmið verkefnisins eru að hvetja börn til að ganga í og úr skóla og auka færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni. Er þetta tíunda  árið sem verkefnið er unnið hér á landi.

Göngum í skólann er samstarfsverkefni Samgöngustofu, Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, Ríkislögreglustjóra, Embættis landlæknis, mennta- og menningamálaráðuneytis, Slysavarnafélagsins Landsbjargar og Heimilis og skóla.