Málþing um börn og samgöngur

20.11.2019

Málþing um börn og samgöngur var haldið mánudaginn 18. nóvember, á vegum samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins í samvinnu við Samgöngustofu, Vegagerðina og Samband íslenskra sveitarfélaga. Málþingið fór fram í Sveinatungu á Garðatorgi og tóku þar bæði ungir sem aldnir til máls og ræddu stöðu barna í samgöngum í víðu samhengi. Sigurður Ingi Jóhannsson ráðherra samgöngumála og Þórunn Egilsdóttir formaður samgönguráðs settu þingið og stýrði Ragnhildur Hjaltadóttir, ráðuneytisstjóri, fundi og hélt vel utan um dagskrána. 

Fundurinn var öllum opinn og var honum streymt í beinni útsendingu (https://www.samband.is/um-okkur/fundir-og-radstefnur/born-og-samgongur/) og gafst áhorfendum, hvar sem þeir voru staddir, færi á að senda inn ábendingar og spurningar sem ræddar voru í pallborði í kjölfar fyrirlestra. Hér má sjá upptökur frá fyrirlestrum dagsins (https://www.samband.is/um-okkur/fundir-og-radstefnur/born-og-samgongur/). 


Sigurður Ingi flytur ávarp

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, flutti ávarp í upphafi þingsins.

Markmiðið að koma skemmtilegum og góðum hugmyndum í framkvæmd

Karín Óla Eiríksdóttir, formaður ungmennaráðs Grindavíkur, sagði okkur frá málþingi sem ungmennaráðið hélt á síðasta ári og fjallaði um öryggi í umferðinni. Þar héldu þau málstofur og fengu erindi frá hagaðilum og rýndu í mögulegar sviðsmyndir framtíðarinnar þegar kemur að ökutækjum og umferðaröryggi. Þátttakendur höfðu bæði gagn og gaman af og gerðu sér líka glaðan dag með skemmtikvöldi í Grindavík. Hún leggur mikla áherslu á að rödd unga fólksins og skoðanir fái hljómgrunn og séu teknar til greina þegar ákvarðanir varðandi leiðir í umferðarfræðslu séu skoðaðar.


Katrín Óla Eiríksdóttir í pontu

Unga fólkið er meðvitað og vill taka þátt

Í tengslum við ráðstefnu Landsbjargar, Slysavarnir 2019, var haldin vinnusmiðja undir stjórn Manpreet Darroch fyrir umsjónamenn og félaga unglingadeilda Landsbjargar. Þeir Atli Þór Jónsson og Fannar Freyr Atlason eru 15 ára og virkir félagar í unglingadeildinni Árnýju og sögðu okkur frá þátttöku sinni í vinnusmiðjunni sem fjallaði um slysavarnir og umferðarslys, sem eru helsti orsakavaldur á dauða ungs fólk á heimsvísu. Þeir sögðu okkur frá mikilvægi þess að ungt fólk sé sjálft meðvitað og taki þátt í því að bregðast við og finna lausnir. YOURS hefur haldið vinnusmiðjur um alla heim, staðið fyrir herferðum og hefur gríðarlega miklu reynslu af því að leiða vinnu ungs fólks í umferðaröryggismálum. Landsbjörg leggur upp úr því að fulltrúar þeirra vinni áfram með jafningjafræðslu í sínum heimabyggðum. Fulltrúar Íslands stefna á að taka þátt í alþjóðlegri ráðstefnu um umferðaröryggi sem haldin verður í Stokkhólmi í Svíþjóð 19.-20. febrúar 2020. 


"" ""

Samstarf Samgöngustofu við sveitarfélög í landinu

Ólafur Hilmarsson, deildarstjóri yngsta stigs við Grunnskólann í Hveragerði, sagði okkur frá samstarfi Samgöngustofu við Grunnskólinn í Hveragerði sem miðaði að því að efla umferðaröryggi grunnskólabarna í sveitarfélaginu. Umferðarfræðsla var efld í öllum árgöngum og var námsefni af vefnum umferð.is notað til grundvallar. Undir lok skólaársins var formlegt erindi sent til bæjaryfirvalda um úrbætur umhverfis skólann og víðar með aukið umferðaröryggi nemenda að leiðarljósi. Ólafur sýndi okkur árangursríka leið til þess að virkja starfsfólk, nemendur, foreldra og bæjaryfirvöld á gagnlegan og skemmtilegan hátt í átt að bættu umferðaröryggi. 

"" ""

Þorsteinn Gunnarsson, sveitarstjóri Skútustaðahrepps, sagði okkur frá reynslu sinni við undirbúning og framkvæmd umferðaröryggisáætlana bæði fyrir Grindavík og síðar Skútustaðahrepp. Umferðaröryggisáætlanir sveitarfélaga miða að því að auka vitund um umferðaröryggismál meðal forráðamanna sveitarfélaga og almennings. Í því felst að greina stöðuna, finna slysastaði, setja sér markmið og gera aðgerðaráætlun. Þorsteinn miðlaði reynslu sinni við gerð slíkrar áætlunar þar sem leiðbeiningar um gerð umferðaröryggisáætlana fyrir sveitarfélög voru nýttar til grundvallar. Þorsteinn lýsti vinnuferlinu og gaf okkur upplýsingar um helstu áhersluatriði.

"" ""

Erna Bára Hreinsdóttir, forstöðumaður hjá Vegagerðinni, flutti erindið „Komiði með hætturnar!“ sem fjallar um skipulag, þjóðvegi og börn. Sigrún Birna Sigurðardóttir, samgöngu- og umferðarsálfræðingur, fjallaði um hagnýtingu sálfræðilegrar þekkingar til að breyta ferðavenjum og Berglind Hallgrímsdóttir og Höskuldur Kröyer, samgönguverkfræðingar hjá Eflu og Trafkon fjölluðu um öryggi barna í Reykjavík.


""Kristján Freyr Geirsson hjá lögreglunni á Suðurnesjum, Kolbrún Guðný Þorsteinsdóttir sérfræðingur í öryggis- og fræðsludeild Samgöngustofu ásamt Sigurði Inga Jóhannssyni samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.