Gæta þarf að gæðum endurskinsmerkja
Ef endurskinsmerki eru ekki samkvæmt þeim kröfum sem gerðar eru til slíkra öryggisþátta getur skapast falskt öryggi sem haft getur alvarlegar afleiðingar.
Réttar merkingar mikilvægar
Á vefsíðu Neytendastofu kemur fram að neytendur geta ekki séð hversu góð endurskinsmerki eru með því einu að horfa á þau, því hvetur Neytendastofu fólk að skoða vel upplýsingarnar sem gefnar eru á merkinu, umbúðum eða upplýsingablaði sem fylgir þeim. Það er mjög áríðandi að allar tilskildar merkingar og leiðbeiningar um notkun komi greinilega fram.
Hægt að greina merkið í 125 metra fjarlægð
Endurskinsmerki sem standast kröfur verða að vera m.a. með CE-merki og merkt með númerinu EN 13356 eða ÍST EN 13356. Slík merking táknar að framleiðandinn hafi látið prófa vöruna og staðfest er að hún sé í lagi. Viðurkennd endurskinsmerki sýna einstakling sem mætir bíl með lágum ljósum í 125 metra fjarlægð.
Getur skapað falskt öryggi
Endurskinsmerki t.d. vesti, smellubönd, límborðar eða hárskraut sem uppfylla ekki kröfur um endurskin veita falskt öryggi og getur þar af leiðandi skapast lífshætta þar sem einstaklingurinn telur sig vera með endurskinsmerki sem ökumenn ættu að sjá.
Hér má sjá gagnlegar upplýsingar um notkun endurskinsmerkja.