Sáttmáli atvinnubílstjóra og hjólandi vegfarenda
– nú á íslensku, ensku og pólsku
Sáttmáli um gagnkvæman skilning atvinnubílstjóra og
hjólreiðafólks í umferðinni kom út í maí 2019. Markmið sáttmálans er að auka
gagnkvæman skilning og koma í veg fyrir slys og tryggja öryggi allra
vegfarenda. Samhliða fjölgun hjólreiðafólks undanfarin ár hefur hjólreiðaslysum
einnig fjölgað, svo þörfin fyrir sátt og samlyndi ólíkra hópa í umferðinni
hefur aldrei verið brýnni. Sáttmálinn inniheldur góð ráð bæði til
hjólreiðafólks og atvinnubílstjóra eins og til dæmis um blinda svæði
bílstjórans og hættuna fyrir hjólreiðafólk að fara yfir gatnamót. Fjölmörg
fyrirtæki og hagaðilar hafa nú þegar innleitt sáttmálann og notað við fræðslu,
þjálfun og öryggismiðlun sinna starfsmanna.
Nú hefur sáttmálinn verið gefinn út á þremur tungumálum:
ÍSLENSKU
ENSKU
PÓLSKU
Sáttmálinn var gerður í samvinnu Samgöngustofu, Hjólafærni,
Vegagerðarinnar, Eflu verkfræðistofu, Hjólaþjálfun, Landssamtaka
hjólreiðamanna, Strætó, Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og Reykjavíkurborgar
og Siggi danski atvinnubílstjóri kom einnig að undirbúningi hans.
Það er von okkar að sáttmálinn komi að góðum notum og verði sýnilegur sem víðast. Aukið öryggi í umferðinni er hagur okkar allra.