Umferðarþing 2022
virkar samgöngur - betri hreyfing
Þegar horft er til heildarfjölda þeirra sem slösuðust alvarlega eða létust í umferðinni í fyrra hefur „óvörðum vegfarendum“ fjölgað mjög mikið. Óvarðir vegfarendur er samheiti yfir þá vegfarendur sem eru gangandi og hjólandi á reiðhjólum, rafmagnsreiðhjólum og rafhlaupahjólum.
Af heildarfjölda látinna og alvarlega slasaðra nam fjöldi þeirra 42% en það hefur lengst af verið um 30%. Þessa aukningu má að stærstum eða öllum hluta rekja til mikillar fjölgunar slysa á rafhlaupahjólum.
Föstudaginn 23. september verður haldið Umferðarþing í húsnæði Gamla bíós í Reykjavík og er yfirskrift þess „Virkar samgöngur – betri hreyfing“. Sjónum er beint að öryggi gangandi og hjólandi, bæði á reiðhjólum og hinum ýmsu smáfarartækjum þar á meðal rafhlaupahjólum.
Á þinginu verður m.a. fjallað um leiðir, hugmyndir og úrræði til eflingar öryggis þessara ferðamáta. Kynntar verða tillögur starfshóps Innviðaráðherra um setningu reglna um svonefnd smáfarartækja eins og rafhlaupahjól. Fjallað verður um Ísland sem hjólaland, áhrif fyrirhugaðrar Borgarlínu og stofnhjólanets höfuðborgarsvæðisins á þessa samgöngumáta. Varpað verður ljósi á slysaþróun undanfarinna ára og kynntar verða niðurstöður rannsóknar á hjálmanotkun. Skoðaðar verða þær aðstæður og áskoranir sem fatlað fólk stendur frammi fyrir sem virkir vegfarendur. Að lokum verður horft til framtíðar og leitað svara við spurningunni um hverskonar farartæki hún geti og muni væntanlega færa okkur?
Dagskrá þingsins má sjá hér og hægt er að skrá sig á vefslóðinni: samgongustofa.is/umferdarthing