Uppfærðar leiðbeiningar til leigubílstjóra (úr gildi)
Embætti landlæknis og Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra, í samvinnu við Samgöngustofu, hefur nú gefið út uppfærðar leiðbeiningar til leigubílstjóra vegna aksturs með farþega, farþega í sóttkví eða mögulegt COVID-19 smit.
Tilgangurinn leiðbeininga er að verja leigubílstjóra og farþega fyrir hugsanlegu smiti. Einnig er hægt að nálgast mjög góðar leiðbeiningar á covid.is og vef embættis landlæknis til framlínufólks í atvinnulífinu varðandi smitgát og þrif.
Helstu breytingar:
• Í gildi eru 2 metra nálægðarmörk milli einstaklinga sem ekki eru í nánum tengslum.
• Grímuskylda er þar sem ekki er unnt að tryggja 2 metra nálægðarmörk milli einstaklinga sem ekki eru í nánum tengslum.
• Börn fædd 2011 og síðar undanþegin 2 metra reglu, fjöldatakmörkunum og grímuskyldu (gilti áður um börn fædd 2005 og síðar).