Úthlutun atvinnuleyfa til aksturs leigubifreiða

8.5.2020

Samgöngustofa auglýsir laus til umsóknar 19 leyfi til leiguaksturs fólksbifreiða á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum og 1 leyfi á Akureyri.

Þau ein geta sótt um leyfi sem hyggjast stunda akstur leigubifreiðar að aðalatvinnu og hafa lokið námskeiði fyrir leigubifreiðastjóra. Til að öðlast leyfi þurfa umsækjendur að uppfylla leyfisskilyrði, skv. 5. gr. laga nr. 134/2001 , sbr. reglugerð nr. 397/2003 um leigubifreiðar, með síðari breytingum.

Úthlutun leyfis fer fram á grundvelli starfsreynslu við akstur leigubifreiðar, sbr. 6. gr. reglugerðarinnar.

Umsóknareyðublöð má nálgast hér á vefnum.

Umsóknarfrestur er til og með 15. maí nk.