Atvinnuleyfi
Áður forfallabílstjóri/harkari
Einstaklingar sem vilja keyra leigubíl í eigu eða umráðum rekstrarleyfishafa þurfa til þess atvinnuleyfi frá Samgöngustofu. Atvinnuleyfið gildir í fimm ár.
Umsókn um atvinnuleyfi til leigubifreiðaaksturs
Skilyrði atvinnuleyfis
- 21 árs aldur
- Ökuréttindi:
- Almenn ökuréttindi í minnst þrjú ár (almennt bílpróf, B-réttindi)
- Réttindi til að aksturs í atvinnuskyni (B-far) - Námskeið fyrir atvinnuleyfishafa um leigubifreiðaakstur og hafa staðist próf
- Gott orðspor, það er að umsækjandi hafi ekki gerst sekur um refsiverða háttsemi (sakavottorð)
- Atvinnuleyfi innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES)
Fylgigögn
- Afrit af ökuskírteini (báðar hliðar)
- Sakavottorð: Samgöngustofa aflar upplýsinga úr sakaskrá
- Nýleg rafræn mynd í leyfisskírteini
- Afrit af gildum persónuskilríkjum sem staðfesta ríkisfang innan Evrópska efnahagssvæðisins (t.d. ökuskírteini eða vegabréf)
- Einstaklingar sem eru með ríkisfang utan Evrópska efnahagssvæðisins skulu framvísa dvalar- og atvinnuleyfi.
Kostnaður
Greiðsla fyrir leyfi fer eftir gjaldskrá Samgöngustofu og er kr. 6.306. Vinsamlegast greiðið inn á reikning 515-26-210867, kt: 540513-1040. Staðfestingu á greiðslu er hægt að senda inn með rafrænni umsókn eða með tölvupósti á netfangið leyfisveitingar@samgongustofa.is.
Athugið að kostnað við námskeið og vottorð þarf að nálgast hjá viðeigandi aðilum.
Námskeið
Ökuskólinn í Mjódd býður upp á námskeið fyrir þá sem vilja sækja um leyfi vegna leigubifreiðaaksturs.
Spurningar?
Svör við helstu spurningum um leyfi til leigubifreiðaaksturs má finna hér.
Hægt er að senda fyrirspurnir á leyfisveitingar@samgongustofa.is ef einhverjar frekari spurningar vakna.
Lög og reglur
Afgreiðsla og útgáfa leyfa eru í samræmi við lög um leigubifreiðaakstur nr. 120/2022 sem tóku gildi 1. apríl 2023. Nánar er kveðið á um útfærslu laganna í reglugerð um leigubifreiðaakstur nr. 324/2023.