1.9.11 Atvinnurekstur
Útg.nr: 2 Útg.dags: 04.03.2016Vegagerðin: Vegagerðin ákveður hvaða ökutæki eru skráð til atvinnureksturs.
Beiðni um skráningu: Vegagerðin sendir beiðni um skráningu ökutækja til atvinnureksturs og niðurfellingu á slíkri skráningu til Samgöngustofu á netfangið breyting@us.is.
Athugasemd: Skráð er inn stöðluð athugasemd: "Atvinnurekstur". Skráning er felld niður með því að ógilda athugasemdina.
Gjald: Fyrir skráningu á ökutæki til atvinnureksturs og fyrir útprentun á [skráningarskírteini (sé þess óskað)] 1 er innheimt gjald fyrir breytingaskráningu.
1) 04.03.2016