2.6.6 Kennitölubreyting

Útg.nr: 01           Útg.dags: 13.02.2003

Beiðni um breytingu á kennitölu:

Undirritun beiðni: Beiðni skal vera undirrituð af framkvæmdastjóra eða prókúruhafa beggja fyrirtækja.

Gjald: Fyrir skráningu á hverju ökutæki skal greiða gjald samkvæmt gjaldskrá Samgöngustofu.

Við breytingu á kennitölu fyrirtækis eða yfirtöku fyrirtækis er unnt að óska eftir flutningi á ökutækjum fyrirtækis yfir á aðra kennitölu með skriflegri beiðni. Í beiðni skal tilgreina gamla og nýja kennitölu og tryggingafélag ökutækja eftir breytingu.

Tilkynning til hlutafélagaskrár: Með beiðni skal fylgja tilkynning til hlutafélagaskrár um breytingu á fyrirtæki.

Upplýsingar um ökutæki: Í beiðni skal koma fram listi yfir þau ökutæki sem óskað er eftir að verði flutt yfir á aðra kennitölu. Einnig er unnt að óska eftir flutningi á öllum ökutækjum tiltekinnar kennitölu yfir á aðra kennitölu.


Var efnið hjálplegt? Nei