Flugfreyjur og flugþjónar
Í grófum dráttum má skipta þjálfun flugfreyja og flugþjóna (öryggis- og þjónustuliða) niður í grunnþjálfun annars vegar og þjálfun fyrir flugvélaskipti og mismunaþjálfun hins vegar
1) Grunnþjálfunarnámskeið í öryggismálum:
-
Haldið á vegum flugrekenda eða flugskóla sem hafa leyfi til þess.
-
Flestir flugrekendur halda eigin grunnþjálfunarnámskeið um öryggismál.
-
Námskeið veitir engin réttindi en útskrifaðir nemendur fá staðfestingu á að hafa klárað námskeið.
Ekki er nægjanlegt að hafa lokið grunnþjálfunarnámskeiði um öryggismál til þess að geta hafið störf sem öryggis- og þjónustuliði. Til þess þarf einnig að ljúka þjálfun vegna flugvélaskipta.
2) Þjálfun vegna flugvélaskipta:
-
Haldið á vegum flugrekenda.
-
Flugrekandi getur sent nema beint í þjálfun vegna flugvélaskipta hafi hann lokið grunnþjálfunarnámskeiði hjá flugskóla.
Um grunnþjálfun öryggis- og þjónustuliða er fjallað í reglugerð um áhöfn í almenningsflugi nr. 180/2014 . Um þjálfun vegna flugvélaskipta er fjallað í reglugerð um tæknikröfur og stjórnsýslureglur í tengslum við starfrækslu loftfara nr. 237/2014 .