Skírteini svifflugmanns
Til að fá útgefið skírteini svifflugmanns (SPL) þarf að ljúka bóklegu og verklegu námi hjá flugskóla sem hefur heimild til þjálfunar nemenda í svifflugi
Nám í svifflugi
Bóklegt nám fer fram skv. útgefinni námsskrá sem inniheldur níu próffög. Að loknu bóklegu námi hjá flugskóla þarf að standast bókleg próf hjá Samgöngustofu. Prófunum þarf að ljúka með 75% árangri að lágmarki í hverri námsgrein.
Nemar hafa 18 mánuði til að ljúka prófunum talið frá enda þess mánaðar sem fyrsta próf var þreytt. Próftaki fær að hámarki fjórar tilraunir í hverju próffagi.
Útskrift úr bóklegum prófum gildir í 24 mánuði til að ljúka verklegu námi og færniprófi. Þeir sem ekki fullnægja einhverjum framangreindra skilyrða þurfa að fá endurþjálfun hjá flugskóla og endurtaka bókleg próf Samgöngustofu.
Áður en flugnemi fer í sitt fyrsta einflug þarf hann að hafa náð 14 ára aldri og vera handhafi 2. flokks heilbrigðisvottorðs.
Að loknu verklegu námi þarf að standast verklegt færnipróf með prófdómara. Bóklegum prófum þarf alltaf að vera lokið áður en nemanda er heimilt að þreyta verklegt próf.
Lágmarksaldur fyrir útgáfu skírteinis svifflugmanns er 16 ár.
Réttindi svifflugmanns
Réttindi handhafa skírteini svifflugmanns eru að stjórna svifflugum án þess að taka greiðslu fyrir. Til að mega flytja farþega þurfa flugmenn áður að hafa lokið a.m.k. 10 klst. fartíma eða 30 flugtök sem flugstjóri á svif- eða vélsvifflugum eftir útgáfu skírteinisins.
Til að viðhalda réttindum fyrir svifflugur þarf skírteinishafi að hafa lokið á síðustu 24 mánuðum; að minnsta kosti fimm fartímum, þ.m.t. 15 flugtök eða tveimur þjálfunarflugum með flugkennara á svifflugur, eða standast hæfnipróf með prófdómara.
Til að viðhalda réttindum fyrir ferðasvifflugur (TMG) þarf skírteinishafi að hafa lokið á síðustu 24 mánuðum, annað hvort:
- að minnsta kosti 12 fartímum sem flugstjóri eða undir leiðsögn kennara í tví / einliða flugi;
- þar af a.m.k 6 flugstundir og 12 flugtök og lendingar, ásamt einu þjálfunarflugi með flugkennara sem þarf að vera að lámarki 1 klukkustund, eða;
- standast hæfnipróf með prófdómara.