Merki Samgöngustofu
Í júní 2022 var kynnt ný framtíðarstefna Samgöngustofu og samhliða nýrri stefnu fékk Samgöngustofa nýja ásýnd og nýtt merki.
Alla hönnun, lógó og annað má nálgast á sérstökkum hönnunarvef honnun.samgongustofa.is.
Lögð er áhersla á að við þurfum að vera samferða í þeirri vegferð okkar að gera samgöngur á Íslandi öruggari og umhverfisvænni, hvort sem við ferðumst í lofti, á láði eða legi. Hvort sem við keyrum, fljúgum, siglum, hjólum, notum rafskútur, bíla, flugvélar eða skip, þá eigum við öll samleið í því að sækjast eftir metnaðarfullum markmiðum hvað öryggi varðar.