Almennar fréttir
2023
2022
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
2021
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
2020
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
2019
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
2018
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
2017
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
2016
2015
des., nóv., okt., sep., ágú., júl., jún., maí, apr., mar., feb., jan.
2014
Aukning í ökutækjaskráningum
Það sem af er árinu hefur veruleg aukning orðið í nýskráningum ökutækja. Í gær höfðu samtals 18.616 ökutæki verið nýskráð í samanburði við 12.982 á sama tímabili í fyrra.
Lesa meiraAfgreiðslutímar yfir hátíðirnar
Samgöngustofa verður lokuð á aðfangadag. Á gamlársdag verður aðeins opið í ökutækjaskráningum á milli klukkan 9:00 og 12:00. Að öðru leyti verður afgreiðslutími með eðlilegu sniði.
Gleðileg jól!
Lesa meiraJóladagatal fyrir börn
Vegna óveðurs
Einkaflugmannspróf fara fram á vegum Samgöngustofu síðdegis í dag og á fimmtudag samkvæmt áætlun. Óveður gengur nú yfir en gert er ráð fyrir að það gangi niður eftir því sem líður á daginn. Því telur stofnunin ekki þörf á því að fresta fyrirhuguðum prófum.
Lesa meiraUppfærsla á kerfum
Kerfi Samgöngustofu verða uppfærð í dag eftir kl. 18 og reikna má með að vefþjónustur fyrir ökutækjaskrá liggi niðri frá þeim tíma og til hádegis á laugardag.
Lesa meiraVefur Samgöngustofu í hópi fimm bestu ríkisvefjanna
Á Degi upplýsingatækninnar voru kynntar niðurstöður úr könnuninni „Hvað er spunnið í opinbera vefi 2015?“. Af alls 147 vefjum ríkisstofnana sem skoðaðir voru var vefur Samgöngustofu í hópi þeirra fimm sem besta útkomu hlutu.
Lesa meiraVegna umfjöllunar FÍB
Breytingar á menntunarkröfum til farmanna
Ýmsar breytingar hafa verið gerðar á menntunarkröfum til farmanna á flutninga- og farþegaskipum og gera auknar kröfur til þjálfunar og menntunar farmanna umfram það sem verið hefur.
Lesa meiraÖruggur akstur eldri borgara
Félag eldri borgara í Reykjavík, í samvinnu við Samgöngustofu, heldur upprifjunarnámskeið í öruggum akstri fyrir eldri ökumenn. Þetta fyrsta námskeið er gjaldfrjálst og opið öllum eldri borgurum.
Lesa meiraÁhrif verkfalls SFR
Verði af verkfalli félagsmanna SFR raskar það starfsemi Samgöngustofu þannig að afgreiðsla og símaver lokar. Því yrði hvorki hægt að móttaka né afhenda gögn. Starfsfólk annarra stéttarfélaga verður við störf, finna má öll netföng hér.
Lesa meiraGöngum í skólann og nýr Umferðarvefur
Á vefnum efni er fjölbreytt efni sem gagnast kennurum og foreldrum til að fræða börnin á markvissan og árangursríkan hátt um umferðaröryggi
Lesa meiraGöngum í skólann
Flutningaskipið m/s Basic Princess í farbann
Við hafnarríkiseftirlit í Straumsvík 17. ágúst var flutningaskipið m/s Basic Princess sem skráð er í Panama, sett í farbann. Að viðgerð lokinni 20.08.2015 var farbanni aflétt.
Lesa meiraUpprifjunarnámskeið prófdómara flugskírteina
Ársreikningur 2014
Keyrum fullklædd
Samgöngustofa og Vís stóðu fyrir óvenjulegri keppni um það hver væri fljótastur að spenna á sig öryggisbelti. Forystufólk íslenskra stjórnmálaflokka lagði málefninu lið með þátttöku í keppninni og boðskapurinn er skýr: Öryggisbeltið bjargar mannslífum. Hér má sjá stórskemmtilega viðureign stjórnmálafólksins.
Lesa meiraHjólreiðakeppni á þjóðvegum landsins
Alþjóðlega hjólreiðakeppnin WOW Cyclothon hófst í dag og stendur til 26. júní. Á annað hundrað lið taka þátt að þessu sinni og því má gera ráð fyrir verulegri fjölgun hjólreiðafólks á þjóðvegum landsins næstu daga. Mikilvægt er að allir vegfarendur, jafnt hjólandi sem akandi, sýni gagnkvæma tillitssemi á meðan á keppninni stendur.
Lesa meiraViðskiptavinir athugið
Samgöngustofa styður jafnrétti og því verður stofnunin lokuð frá kl. 12 á hádegi, föstudaginn 19. júní, í tilefni af aldarafmæli kosningaréttar kvenna á Íslandi.
Lesa meiraKönnun um öryggi og hagi sjómanna
Samgöngustofa fékk Gallup til að gera könnun um líðan og öryggi sjómanna í þeim tilgangi að nýta niðurstöðurnar til úrbóta. Meðal þess sem fram kemur er að undirmenn á skipum telja að öryggismálum sé ábótavant og það skorti fræðslu og kynningu fyrir nýliða. Hins vegar meta sjómenn heilsufar sitt almennt gott og eru ánægðir í starfi.
Lesa meiraLandsliðið í átaki með Samgöngustofu
Lokun svæðis við Holuhraun aflétt
Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Norðurlandi eystra, hefur aflétt lokunarsvæði umhverfis Holuhraun.
Lesa meiraUpprifjunarnámskeið prófdómara flugskírteina
Samgöngustofa heldur upprifjunarnámskeið fyrir prófdómara flugskírteina þann 11. júní nk. Skilyrði fyrir endurnýjun/framlengingu prófdómararéttinda er að umsækjandi hafi setið slíkt námskeið á sl. 12 mánuðum.
Lesa meiraGóður fundur með bifhjólafólki
Úttekt á vegum EASA
Fundur með bifhjólafólki
Samgöngustofa boðar til sérstaks fundar um málefni og öryggi bifhjólamanna í Ármúla 2 mánudaginn 27. apríl klukkan 18:00. Fundurinn er opinn öllu bifhjólafólki sem láta sig bifhjól og bifhjólmenningu varða.
Lesa meiraLokunarsvæði við Holuhraun
Samgöngustofa ekki tilbúin í skráningar á léttum bifhjólum
Eins og fram hefur komið hafa ýmsar breytingar á umferðarlögum tekið gildi. Þar á meðal eiga létt bifhjól í flokki 1 nú að vera skráningarskyld. Samgöngustofa er þó enn ekki tilbúin til að taka við skráningum þessara hjóla og því frestast sú framkvæmd.
Lesa meiraNý þjónustudeild hjá Samgöngustofu
Í tengslum við skipulagsbreytingar hjá Samgöngustofu er nú verið að setja á laggirnar nýja þjónustudeild á rekstrarsviði. Markmiðið er að þessar breytingar gerist hratt og muni bæta þjónustu við viðskiptavini stofnunarinnar. Til skamms tíma má þó ef til vill búast við einhverjum afgreiðslutöfum á meðan tilflutningar innanhúss og samræming verkferla stendur yfir.
Lesa meiraBreytingar á umferðarlögum
Ýmsar breytingar voru gerðar á umferðarlögum nýverið með samþykki Alþingis 17. febrúar 2015. Þar á meðal eru breytingar á lögum um létt bifhjól og endurmenntun atvinnubílstjóra. Hér má finna samantekt um þær helstu.
Lesa meiraSkipulagsbreytingar hjá Samgöngustofu
Fjárheimildir í fjárlögum ársins 2015 til reksturs Samgöngustofu eru þrengri en áður hafði verið gert ráð fyrir. Við því hefur verið brugðist með skipulagsbreytingum innan Samgöngustofu, nýju skipuriti sem miðar að hagræðingu, aukinni samhæfingu og áherslu á enn betri nýtingu mannauðs og verkferla.
Lesa meiraÚthlutun atvinnuleyfa til aksturs leigubifreiða
Leyfishafanámskeið leigubílstjóra
Með vísun til laga nr. 134/2001 um leigubifreiðar, gengst Samgöngustofa fyrir rekstrarleyfisnámskeiði fyrir leigubílstjóra í Ökuskólanum í Mjódd dagana 23. – 27. mars 2015.
Lesa meiraVegna atviks hjá Samgöngustofu fimmtudaginn 12. mars
Breyting í framkvæmdastjórn
Ólafur J. Briem hefur beðist lausnar frá stjórnunarskyldum sínum sem framkvæmdastjóri siglingasviðs Samgöngustofu frá og með deginum í dag, 5. mars 2015.
Lesa meiraRéttindanám leyfishafa í fólks- og farmflutningum
Með vísun til laga nr. 73/2001 mun Samgöngustofa standa fyrir námskeiði fyrir fólks – og farmflutninga í Ökuskólanum í Mjódd dagana 9. – 14. mars 2015.
Lesa meiraFjölsóttur fundur um flugöryggi í einka- og frístundaflugi
Miðvikudaginn 18. febrúar síðastliðinn var haldinn fundur um flugöryggi í einka- og frístundaflugi. Að fundinum stóðu Samgöngustofa, innanríkisráðuneytið, rannsóknarnefnd samgönguslysa og Flugmálafélag Íslands.
Lesa meiraVel heppnuð umferðar– og samgönguþing að baki
Í gær, fimmtudaginn 18.febrúar, fóru fram umferðarþing og samgönguþing í Hörpu.
Lesa meiraBreytt lokunarsvæði vegna eldgoss í Holuhrauni
Þann 13. febrúar tilkynnti Ríkislögreglustjóri um breytingu á umfangi aðgangsstýrða svæðisins norðan Vatnajökuls. Ytri mörk hættusvæðisins eru óbreytt frá fyrri ákvörðun en lokunarsvæðið hefur verið minnkað.
Lesa meiraFundur um flugöryggismál í einka- og frístundaflugi 18. febrúar
Miðvikudaginn 18. febrúar verður fundur um flugöryggi í almenningsflugi haldinn í samvinnu Samgöngustofu við innanríkistráðuneytið, Rannsóknarnefnd samgönguslysa og flugmálafélag Íslands.
Lesa meiraUmferðarþing og samgönguþing verða haldin 19. febrúar
Umferðar- og samgönguþing verða haldin fimmtudaginn 19. febrúar í Hörpu í Reykjavík. Þingin eru skipulögð af innanríkisráðuneytinu, samgönguráði og Samgöngustofu. Umferðarþingið verður haldið milli klukkan 9.00 og 12.15 en samgönguþingið stendur frá klukkan 13.15 til 17.00.
Lesa meiraStarfsdagur Samgöngustofu fimmtudaginn 12. febrúar
Vegna starfsdags Samgöngustofu, fimmtudaginn 12.febrúar næstkomandi, verður lágmarksþjónusta hjá stofnuninni frá kl 12:00 á hádegi. Afgreiðslan opnar aftur með eðlilegum hætti klukkan 09:00 föstudaginn 13. febrúar.
Lesa meiraVefur Samgöngustofu valinn Besti opinberi vefurinn 2014
Vefur Samgöngustofu, www.samgongustofa.is, vann í gærkveldi, 30.janúar, til verðlauna sem „Besti opinberi vefurinn“ á Íslensku vefverðlaununum 2014.
Lesa meiraRafrænir reikningar
Eins og aðrar stofnanir ríkisins stefnir Samgöngustofa að pappírslausum viðskiptum sem er liður í aukinni hagræðingu, betra yfirliti og hraðari afgreiðslu. Frá og með næstu mánaðamótum, 1. febrúar 2015 mun stofnunin eingöngu senda reikninga rafrænt til viðskiptavina sinna.
Lesa meiraSýknudómur Hæstaréttar
Þann 21. janúar sýknaði Hæstiréttur fjóra atvinnubílstjóra, sem dæmdir höfðu verið í Héraðsdómi Norðurlands eystra, til sektargreiðslu þar sem þyngd bíls þeirra og eftirvagns mældist meiri en umferðarlög leyfa.
Lesa meiraVefur Samgöngustofu tilnefndur til Íslensku vefverðlaunanna
Samtök vefiðnaðarins hafa tilnefnt vef Samgöngustofu til úrslita í tveimur flokkum í árlegri samkeppni um bestu vefi landsins. Vefurinn er tilnefndur í flokkunum „Besti opinberi vefurinn“ og „Aðgengilegasti vefurinn“.
Lesa meira