Upprifjunarnámskeið prófdómara flugskírteina
Samgöngustofa heldur upprifjunarnámskeið fyrir prófdómara flugskírteina þann 11. júní nk. Skilyrði fyrir endurnýjun/framlengingu prófdómararéttinda er að umsækjandi hafi setið slíkt námskeið á sl. 12 mánuðum.
Námskeiðið verður haldið í Flugröst, Nauthólsvegi 99, kl. 10:00 - 16:00. Tekið er á móti skráningum til og með 5. júní á netfangið fcl@icetra.is.