EASA tilkynnir áform um að afturkalla kyrrsetningu Boeing B737 MAX - 24.11.2020

Flugöryggisstofnun Evrópusambandsins (European Union Aviation Safety Agency - EASA) sem Ísland er aðili að, kyrrsetti flugvélategundina Boeing B737 MAX í Evrópu þann 12.mars 2019. Nú um 20 mánuðum síðar hefur EASA gefið út fréttatilkynningu sem vísar í skýr áform stofnunarinnar um að afturkalla kyrrsetninguna á næstu vikum.

Lesa meira

Bóklegum PPL- og ATPL-prófum frestað - 16.11.2020

Af óviðráðanlegum ástæðum neyðist Samgöngustofa til þess að fresta bóklegum PPL- og ATPL-prófum sem voru á áætlun í lok nóvember og byrjun desember. Þau eru nú áætluð dagana 7. – 11. desember 2020. 

Lesa meira

Flugnám- dregið úr samkomutakmörkunum 18. nóvember - 13.11.2020

Breytingar á reglugerðum um takmarkanir á samkomum og skólahaldi vegna farsóttar taka gildi 18. nóvember og gilda til og með 1. desember nk. Starfsemi og þjónusta sem krefst snertingar milli fólks verður leyfð með þeim skilyrðum að notast sé við andlitsgrímur og á það við um verklega flugkennslu. 

Lesa meira

Námskeið fyrir prófdómara flugskírteina - 12.11.2020

Samgöngustofa mun halda námskeið fyrir prófdómara flugskírteina í desember. Námskeiðið verður haldið með fjarfundabúnaði og skiptist á tvo morgna, mánudaginn 7. desember og þriðjudaginn 8. desember. 

Lesa meira

Flugnám, verkleg kennsla – hertar aðgerðir um allt land til 17. nóvember - 2.11.2020

Ný reglugerð heilbrigðisráðherra um takmörkun á samkomum og hertar aðgerðir tók gildi 31. október 2020 og gildir til og með 17. Það er mat heilbrigðisráðuneytis að verklegt flugnám og kennsla, þar sem ekki er unnt að viðhalda 2 metra nálægðartakmörkun, er óheimilt til 17. nóvember nk.

Lesa meira