Bann við flugi dróna vegna æfinga NATO

8.7.2020

Vegna komu herskipa og kafbáta NATO sem verða við landið vegna Dynamic Mongoose æfingarinnar verður óheimilt að fljúga dróna (fjarstýrðu loftfari) innan 400 metra radíusar frá skipunum og kafbátunum, bæði meðan þau eru innan íslenskrar landhelgi og meðan þau liggja við Skarfabakka við Sundahöfn.

Bannið gildir frá 10. júlí til og með 14. júlí 2020.