Námskeið fyrir prófdómara flugskírteina

10.4.2019

Samgöngustofa mun halda námskeið fyrir prófdómara flugskírteina fimmtudaginn 23. maí nk. í húsnæði Samgöngustofu, Ármúla 2, frá kl. 10:00 til 16:00.

Skilyrði fyrir endurnýjun/framlengingu og frumútgáfu prófdómararéttinda er að umsækjandi hafi setið slíkt námskeið á sl. 12 mánuðum.

Vinsamlegast sendið skráningu með tölvupósti á netfangið fcl@icetra.is eigi síðar en 10. maí nk.

Námskeiðsgjaldið er 34.880.- og innifaldar eru veitingar meðan á námskeiði stendur.